búvörulög.
Virðulegi forseti. Sóknarfæri í íslenskum landbúnaði eru að mínu mati gríðarleg ef rétt er á málum haldið og menn þora að fara út úr því gamla kerfi sem m.a. búvörusamningarnir sem þetta mál byggir á reiða sig líka á. Búvörusamningarnir sem voru gerðir á sínum tíma voru vondir. Þeir voru fyrst og fremst ekki góðir fyrir landbúnaðinn en ekki heldur fyrir neytendur.
Hér er verið að stíga örlítið jákvætt skref að mínu mati og þess vegna mun ég sitja hjá. Það er t.d. ekki tekið á afurðastöðvunum sem m.a. halda bændum í ákveðnum heljargreipum. Það þarf að opna kerfið og gera það frjálsara þannig að við getum ýtt undir nýsköpun sem við þurfum mjög á að halda í íslenskum landbúnaði því að sóknarfærin eru gríðarleg. Þess vegna mun ég sitja hjá varðandi þetta mál þegar kemur að búvörusamningunum.