149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:30]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er frekar leiðinlegur siður hjá hv. þm. Óla Birni Kárasyni að svara yfirleitt út í hött eða með einhverjum skætingi. En það er nú bara hans taktík hér í þingsal. (ÓBK: Þetta var nú illa sagt.) Á þeim árum sem ég var ráðherra og hv. þingmaður var að vísa til þá var reynt að semja um undanþágur frá þessu ferli öllu saman en þær því miður fengust ekki. Það fengust einhverjar undanþágur sem skipta voðalega litlu máli. Þess vegna erum við komin af stað í dag með að þurfa að segja nei við þessu.

Það er rangt sem hv. þingmaður hefur sagt að einhverju hafi verið lofað. Hver lofaði Norðmönnum að innleiða þennan pakka? Ég veit ekki hver það var. Það er enginn sem ég þekki. Hv. þingmaður sagði það hér áðan. (Gripið fram í.)

Mig langar að spyrja þingmann hvernig honum dettur það í hug að gera lítið úr flokkssystur sinni, Ragnheiði Elínu Árnadóttur, sem flutti frumvarp árið 2015, frumvarp sem var flutt í framhaldi af raforkulögunum sem voru samþykkt 2013 varðandi kerfisáhættu fyrir Ísland. Ætla þingmenn að koma hér núna og segja að það sé rangt að frumvarpið hafi verið flutt til þess að fylgja eftir lögum frá 2003? Og hvað sagði ráðherrann í ræðu sinni? Að það væri ekki grundvallarástæða að koma með þessi lög, orkupakkinn sem nú er um að ræða. (Forseti hringir.) Er þingmaðurinn að segja að þáverandi ráðherra hafi sagt ósatt í ræðustól þegar hún sagði að þetta væri ekki grundvallarástæðan fyrir því að breyta lögunum? … flett upp ræðunni.