um fundarstjórn.
Herra forseti. Bara til að taka undir það sem hefur verið sagt væri allt í lagi að takmarka okkur við einhvern hóflegan tíma. Það hefur þótt málefnalegt að vera ekki öllu lengur en til miðnættis og jafnvel þótt skemur væri. Nú vitum við að takmörkun á svefni hefur ýmis slæm áhrif á okkur mannfólkið. Við verðum gleymnari. Við gerum fleiri mistök. Auk þess eigum við kannski erfitt með að halda röksemdafærslum í lógísku framhaldi og við vitum að slíkt má eiginlega ekki henda á Alþingi. Það er mikilvægt að við séum öll alveg bráðskörp. Ég myndi því leggja til, sé samhugur um það, að ljúka þingfundi ekki öllu seinna en á miðnætti. Það væri ágætt.