149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:40]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þetta. Ég vil leyfa mér aðeins að hugsa hér upphátt, ef þetta eru smámunir. Við erum hér með fyrirtæki, segjum bara álver sem framleiðir vöru sem þarf svo að flytja til Evrópu eða hvert sem er, og ef strengur er kominn þá er engin ástæða til að halda þessu fyrirtæki hér. En það er hins vegar hægt að nýta orkuna sem er hrein, sem verður til hér á landi, til þess að geta starfrækt þetta álver í Evrópu í staðinn. Til að losna við flutningshliðina. — Þú þarft ekki að hrista hausinn, hv. þm. Björn Leví. (Gripið fram í.) Þetta er svona. (BLG: Sæstrengurinn ber það ekki.)