149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Norðmenn settu átta fyrirvara þegar þeir samþykktu málið í Stórþinginu í marsmánuði í fyrra. Greidd voru atkvæði um málið í norska Stórþinginu 22. mars í fyrra og þá gerðu fimm af átta stjórnmálaflokkum í Noregi samkomulag um þetta mál. Þar eru reistir átta fyrirvarar.

Sagt hefur verið í þessum þingsal að þeir hafi ekki haldið. Það hefur enginn bent á það, þeir hafa bara haldið. Það hefur ekkert verið sagt um að þeir haldi ekki. Hins vegar segja menn það hægri, vinstri, en það hefur ekki verið staðfest. Ég veit ekki betur en að þeir hafi haldið, þannig að það sé ljóst.

Ég hef ekki tíma til að fara af nákvæmni í valkostina tvo. En Norðmenn reistu sína fyrirvara og þeir hafa haldið, það er ljóst. (Gripið fram í.)