149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:07]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir svarið. Jú, þetta mál er allt þannig, og allir vegvísar í málinu vísa á sama stað: Sú ákvörðun er líklega tekin af ásetningi einhvers eða einhverra, eða undir þrýstingi, að fara leið sem er ófær miðað við þær forsendur sem gefnar eru. Ég hallast að því að hér sé, í trássi við vilja meiri hluta Alþingis, stefnt að því að innleiða að fullu orkupakka þrjú og fá klapp á bakið frá Evrópusambandinu fyrir. Þegar það var skoðað í upphafi stóð það aldrei til.

Það hefur komið hér fram að allir leiðtogar þessara flokka sem fremst fara í fylkingu hafa lýst því yfir, herra forseti, að þeir myndu aldrei fara þessa leið, það stæði ekki til. Hér yrði staðinn vörður um fullveldið og yfirráð okkar yfir orkuauðlindinni og að þessi leið yrði ekki farin. En 12 mánuðum síðar er alger viðsnúningur á þeirri stefnu og málið þannig umbúið, þrátt fyrir yfirlýsingar um að það sé alveg sérstaklega vandað, að allur málatilbúnaður stenst enga skoðun. Og það er enginn tilbúinn að koma hér í ræðustól og vefengja að þessi orð.