ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Já, það verður að segjast eins og er að þetta er mjög einkennilegt, en staðreyndirnar tala fyrir sínu. Búið er að sýna fram á að ávinningurinn er svo lítill að það tekur því ekki að standa í þessu. Síðan ganga fram fyrir skjöldu stjórnarþingmenn og formaður utanríkismálanefndar og halda allt öðru fram.
Maður spyr: Hverra erinda eru þessir þingmenn að ganga með því að koma með þessar rangfærslur? Þetta er bara með sama hætti og þegar þessir sömu þingmenn héldu því fram að rafmagnsreikningurinn myndi lækka þegar við innleiddum orkupakka eitt og tvö. Ég gerði grein fyrir því hér að rafmagnsreikningurinn hefði hækkað til húshitunar hjá fjölmörgum. Þá var bara kallað fram í hér úr sal að það væri rangt.
Fyrrnefndur hv. þm. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sagði í þættinum Vikulokin þegar ég benti á þetta — ég var ásamt henni og fleiri þingmönnum í þættinum fyrir stuttu og þá rakti ég þetta, en hv. þingmaður sagði margsinnis að þetta væri rangt hjá mér, margsinnis. Hér er ég búinn að sýna fram á annað með gögnum en hv. þingmaður hefur ekki getað framvísað neinum gögnum. Auðvitað er það ábyrgðarhluti þegar hv. þingmaður, sem stýrir þessu máli innan nefndarinnar, skuli ganga fram fyrir skjöldu með þessum hætti. Það er verulegt áhyggjuefni og alvarlegt í mínum huga að þingmenn skuli ganga fram fyrir skjöldu á þennan hátt.