149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:59]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það er nákvæmlega í þessu samhengi sem þarf að ræða þetta mál. Með samþykkt þeirrar þingsályktunartillögu sem hér er til umræðu er felldur brott hinn stjórnskipulegi fyrirvari sem gerður var á vettvangi sameiginlegu nefndarinnar þegar hún ákvað að taka þennan orkupakka upp í þetta heila móverk sem þarna liggur fyrir.

Þá er spurningin þessi: Þegar þingsályktunartillagan hefur verið samþykkt og stjórnskipulegi fyrirvarinn felldur niður með því, hvaða varnir eru þá eftir? Þá er ekki annað að sjá en að við höfum með þeirri ákvörðun hér á Alþingi stofnað til þjóðréttarlegrar skuldbindingar af hálfu Íslands að veita lagagildi, og þá er átt við fullt lagagildi, þeim gerðum sem tilteknar eru í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 5. maí 2017. Þar á meðal er reglugerð 713, sem þeir ágætu höfundar, Friðrik Már og Stefán Árni, hafa lýst. Það má kannski draga saman áhrif af innleiðingu þeirrar reglugerðar með þremur orðum: Skipulag, ráðstöfun og nýting. Og þetta á við um orkuauðlindir þjóðarinnar. Þetta er svo nákvæmlega rakið í þessari álitsgerð, herra forseti, að það getur ekki villst fyrir nokkrum manni hvað er hér á ferð.