149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:06]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Forseti. Mig langar að lesa eftirfarandi texta Styrmis Gunnarssonar, með leyfi hæstv. forseta:

„Málþófið sem nokkrir þingmenn hafa haldið uppi á Alþingi að undanförnu vegna þeirra áforma þingmanna stjórnarflokkanna að samþykkja orkupakka þrjú er endurspeglun á þjóðarvilja, eins og hann hefur komið fram í skoðanakönnunum um málið. … Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa tekið að sér það hlutverk að leiða þetta mál. Með því eru þeir að gera mestu mistök sem flokkurinn hefur gerst sekur um í utanríkismálum. Slík mistök eru ekki mörg, en aðallega á undanförnum árum.“

Mig langar til að biðja hæstv. ráðherra að bregðast við þessum ummælum Styrmis Gunnarssonar sem líklega er sá maður íslenskur sem þekkir innviði Sjálfstæðisflokksins einna best til áratuga.