ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Hann minntist á hæstv. utanríkisráðherra. Því miður verð ég að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum með hans svör. Hann las upp álitsgerðir sem við höfum aðgang að og erum búin að rýna í. Þetta var mjög sérstök innkoma hæstv. ráðherra, verð ég að segja, hann svaraði óljóst og með útúrsnúningum og setti jafnvel út á hv. þingmenn og sakaði þá um að hafa ekki lesið álitsgerðir og annað slíkt. Þetta er í annað eða þriðja sinn sem hann ásakar þingmenn og sérstaklega einn þingmann um að hafa ekki lesið. Þetta er að mínum dómi farið að jaðra við einelti. Svona eiga ráðherrar ekki að koma fram í sínum málflutningi. Þetta hljómaði meira eins og einhverjar málfundaæfingar í Valhöll eða Morfís eða hvað það er. Mér finnst hæstv. ráðherra setja niður við svona málflutning, ég verð að segja það, herra forseti, svo það sé sagt úr þessum ræðustól. Þetta er held ég í þriðja sinn sem ég heyri hæstv. ráðherra setja út á það við hv. þm. Ólaf Ísleifsson, sem er doktor í hagfræði og lærður maður, að hann hafi ekki lesið gögnin. Það er náttúrlega málflutningur sem á ekki að eiga sér stað, það er ósköp einfalt.
Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson talaði um óvissu. Það er alveg ljóst að viðvera hæstv. utanríkisráðherra hér í dag eyddi ekki neinni óvissu.