149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:38]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er það sem bréfritari er farinn að velta fyrir sér, að það sé yfirþjóðlegt vald sem eigi að ákvarða hver arðsemi aðila sé af fjárfestingu sem skuli bundin í tíma

Ég veit að hv. þingmaður er doktor í hagfræði og mig langar til að eiga þá samræðu sem hann kom inn á. Þetta arðsemismat hlýtur að vera gert á forsendum þess að það sé eitthvert ákveðið hlutfall eigin fjár og síðan er það náttúrlega tími fjárfestingarinnar sem þarf að taka inn í reikninginn.

Og af því að þetta tengist þeirri umræðu sem var hér áðan og er raunverulega enn í gangi, um vindmyllurnar sem hafa raunverulega mjög stuttan líftíma miðað við önnur orkumannvirki, sem gera þá orku raunverulega ennú dýrari en annars væri. Það væri afar áhugavert að skoða hvernig það reikningsdæmi myndi líta út og hvaða áhrif það myndi hafa á allan almenning ef slíkar fjárfestingar væru lagðar til grundvallar til að ákvarða orkuverð sem síðan væri selt á einhverju tilteknu verði til almennings og fyrirtækja. Og þá hin hagrænu og efnahagslegu áhrif sem af því hljótast varðandi iðnað í landinu, atvinnuuppbyggingu og byggðastefnu.