149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

athugasemdir forseta við orð þingmanns.

[15:45]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Mér ber að koma hérna upp og biðja hæstv. forseta um að útskýra fyrir okkur hvers vegna hann telur ítrekað tilefni til að stoppa þingmenn Pírata þegar þeir koma upp í pontu til þess að tjá sig. Núna stoppaði hann hv. þm. Helga Hrafn Gunnarsson þegar hann var búinn með eina mínútu í tveggja mínútna ræðu. Hvaða forsendur hafði forseti til að ákveða að hv. þingmaður væri ekki á réttri leið með sína óundirbúnu fyrirspurn? Spurningin átti bara eftir að koma fram.

Ég átta mig ekki alveg á þessu. Er svona óþægilegt að við komum upp í pontu að forseti telur ástæðu til þess að stoppa okkur í miðjum ræðum?

Ég væri til í að heyra svar.