149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

störf þingsins.

[10:35]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með því sem gerðist í borgarstjórn þegar Gunnlaugur Bragi Björnsson, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, formaður Hinsegin daga og hluti af meiri hlutanum, flutti fyrir hönd hans tillögu um það að málaður yrði varanlegur regnbogi á gangbrautir eða annars konar gönguþverun, göngustíg, vegg eða á öðrum áberandi stað í miðborg Reykjavíkur.

Það er ótrúlega gaman að sú tillaga hafi verið samþykkt samhljóða því að eins og Gunnlaugur bendir á er þess minnst í ár að 50 ár eru liðin frá Stonewall-uppreisninni á sínum tíma en ekki síður þess að 20 ár eru síðan að hinsegin helgi var haldin. Hún heppnaðist það vel að strax árið eftir voru haldnir Hinsegin dagar sem eru svo sannarlega mikilvægir fyrir okkur öll.

Gunnlaugur Bragi segir m.a. í frábærri ræðu:

„Förum aftur til ársins 1969. Það er föstudagur, síðla júnímánaðar, og í New York er bæði heitt og rakt. 27. júní var ósköp venjulegur föstudagur, kannski fyrir utan þá staðreynd að útför sjálfrar Judy Garland fór fram þennan dag. Judy hafði þá í þrjá áratugi verið eftirlæti homma í New York, og auðvitað fleiri víða um heim, allt frá því að hún fór með hlutverk Dorothy í Galdrakarlinum í Oz. Það snerti nefnilega streng í hjörtum hinsegin fólks þess tíma þegar Dorothy söng um landið handan regnbogans, landið þar sem draumarnir rætast. Lagið innsiglaði á undraverðan hátt vonir fólks um betri heim og því kannski ekki að ástæðulausu sem lagið sem um ræðir hefur allar götur síðan verið einn af helstu baráttusöngvum hinsegin fólks um víða veröld.“

Gunnlaugur Bragi bendir síðan réttilega á að á hverjum degi glímir hinsegin fólk við ýmiss konar áreiti og mismunun í samfélaginu. Líkamsárásir, hatursorðræða vegna kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar og kyneinkenna tíðkast enn.

Það hefði þurft að segja mér það tvisvar og þrisvar að við Íslendingar værum ekki í fararbroddi á regnbogalista ILGA. Við erum í 18. sæti, sætinu á undan Ungverjum. (Forseti hringir.) Þess vegna vil ég hvetja okkur öll, ríkisstjórnina og alla sem hér eru inni, til að koma okkur Íslendingum í fararbrodd þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Við eigum að nýta samtakamáttinn sem er í þessum þingsal og einhenda okkur í það verk. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )