149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:42]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Það var mjög fróðlegt að fara yfir sögu virkjana vegna þess að niðurstaða mín var sú, og það er alls ekki ný uppgötvun heldur nokkurn veginn alkunn staðreynd, að fallvatnsvirkjanir hér á landi eru raunverulega komnar út á enda. Auðvitað getum við virkjað hinar ýmsu ár og aukið við þetta en allar stórar virkjanir og eitthvað sem verulega kveður að, eins og t.d. Kárahnjúkavirkjun sem er upp á ein 700 MW, verður ekki endurtekið. Það verður ekki endurtekið, hv. þingmaður, nema menn gangi á þær auðlindir sem má kannski setja undir umhverfislega þætti eins og Dettifoss og Gullfoss o.s.frv. Þá þurfa menn að fara að grípa inn í okkar dýrmætustu perlur. Þannig að menn ganga ekki mjög langt þangað. Menn verða því að finna aðrar auðlindir, eins og ég hef verið að benda á, vindorkuna (Forseti hringir.) og gufuaflsvirkjanir.