almenn hegningarlög o.fl.
Herra forseti. Frumvarp þetta er liður í því að sporna við misnotkun á alþekktu fyrirbæri sem í daglegu tali kallast kennitöluflakk. Það eru tíu ár frá því að fjórir þingmenn lögðu fram frumvarp á Alþingi þessa efnis en löggjafinn hefur sýnt óásættanlegt umburðarlyndi. Samtök iðnaðarins hafa verið harðorð í gagnrýni sinni á kennitöluflakk í íslensku atvinnulífi. Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa sömuleiðis barist fyrir þessu árum saman.
Í skýrslu vinnuhóps ráðherra frá því í janúar sl. um félagsleg undirboð og brotastarfsemi á vinnumarkaði er þetta efst á blaði, að taka á kennitöluflakki með afgerandi hætti. Með þessu frumvarpi er stigið skref í rétta átt en betur má ef duga skal. Áfram þarf að berjast gegn þeirri glæpastarfsemi sem hefur fengið að viðgangast á kostnað einstaklinga, fjölskyldna, sveitarfélaga og ríkissjóðs á Íslandi.
Ég segi því auðvitað já.