149. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2019.

menntun, hæfni og ráðning kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

801. mál
[00:41]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta frumvarp er einn liður af mörgum í aðgerðum sem er m.a. ætlað að gera kennarastarfið eftirsóknarverðara. Ég styð málið en vil þó taka fram að ég tel að þær breytingartillögur sem meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til séu mjög mikilvægar, til að mynda það að háskólanum sé gefinn lengri tími til að vinna að endurskoðun og undirbúningi kennaranáms með hliðsjón af öðrum breytingum sem er verið að gera með frumvarpinu. Ég tel mjög mikilvægt að sú breytingartillaga verði samþykkt sem og þær breytingartillögur sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson leggur til við málið, m.a. um frestun á gildistöku laganna og bráðabirgðaákvæði.

Ég vona að frumvarpið verði samþykkt með þessum breytingartillögum.