mannanöfn.
Herra forseti. Þetta mál var ekki tilbúið þegar það kom inn í þingið. Ég tek undir það sem kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans og þeirra umsagnaraðila sem voru þeirrar skoðunar. Ég get sömuleiðis tekið undir það að margar af þeim breytingartillögum sem hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson leggur fram til að bæta málið gera það sannarlega en það er grundvallaratriði fyrir mér að ekki sé rétt að taka breytingar á mannanafnalögum úr samhengi við málstefnuna.
Þess vegna hefði ég talið að slíkt mál þyrfti miklu vandaðri undirbúning og miklu ítarlegra samráð. (ÞKG: Fyrirsláttur.) Ég sé að þessi málflutningur fer mjög fyrir brjóstið á hv. þingmönnum Viðreisnar. Þeir geta bara ekki haldið í sér á meðan ég fæ að nýta mínar tvær mínútur.
(Forseti (SJS): Eina.)
Sömuleiðis tel ég að þetta mál hefði þurft víðtækara samráð við almenning í landinu því að þetta er einmitt mál sem varðar okkur öll. Ég held að hv. þingmenn sem aðhyllast vönduð vinnubrögð og almennilegan (Forseti hringir.) undirbúning mála geti einfaldlega ekki greitt þessu frumvarpi atkvæði sitt og ég mun svo sannarlega leggjast gegn því.
Ég tel hins vegar að breytingar á mannanafnalögum eigi að vanda og því er ég ekki ósammála að þær þurfi hugsanlega að gera.