149. löggjafarþing — 127. fundur,  20. júní 2019.

úttekt á fjárhagslegum áhrifum þess fyrir ríkissjóð að afnema skerðingar ellilífeyris almannatrygginga vegna tekna af atvinnu.

993. mál
[01:41]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Hingað hef ég komið tvívegis og mælt fyrir frumvarpi til laga um afnám skerðingar vegna atvinnutekna aldraðra. Við höfum lagt fram gögn og talið að yfir vafa sé hafið að það muni ekki hafa í för með sér aukinn kostnað.

Nú höfum við stigið risastórt skref í jákvæða átt. Við erum að taka utan um þetta mál og höfum falið það félagsmálaráðherra. Það verður gerð úttekt á því hvort í raun og veru sé kostnaður, hvernig hann sé gagnvart þessu máli — eða ef satt reynist og hann er ekki, þá verður skrefið enn þá stærra. Ég treysti því og trúi að við séum í rauninni að uppskera eitthvað svipað fallegt og við gerðum á svipuðum tíma í fyrra þegar við náðum í sameiningu að afnema skerðingar vegna styrkja til okkar minnstu bræðra og systra og ég held að þetta sé lítið réttlætisskref í þá átt.