149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[19:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég tek undir þessar breytingar varðandi óvissusvigrúmið hjá meiri hlutanum en þær eru ekki unnar út frá fráviksgreiningu eins og ríkisstjórnin og meiri hlutinn í raun ætti að hafa bolmagn til að gera, ólíkt okkur í minni hlutanum.

Þess vegna greiði ég ekki breytingunni atkvæði. En mér finnst þetta jákvætt miðað við framlagða tillögu ríkisstjórnarinnar þar sem óvissusvigrúmið var einungis 0,4%. Ég tel að það gæti verið ástæða til að hafa óvissusvigrúmið aðeins meira en þetta er góð viðbót.