fjármálaáætlun 2020--2024.
Hæstv. forseti. Ég ætla að byrja á því að leiðrétta smávillu sem er á bls. 3 í nefndaráliti meiri hluta með fjármálaáætlun. Þar er samanburður á hagspám, febrúarspá og maíspá, þar sem segir í texta um atvinnuleysi að það verði 3,7% á árinu en lækki strax á næsta ári í 3,2%, sem er nánast óbreytt frá því í fyrra, en á að vera: en hækki á næsta ári í 3,8% og haldist nálægt því hlutfalli út spátímann.
Ég vil auðvitað miklu frekar þakka góða umræðu hér í dag um bæði þau mál sem við erum að greiða atkvæði um núna, við erum búin með stefnu og svo er áætlun. Í þessari áætlun endurspeglast sterk staða ríkisstjórnarinnar og skynsamleg fjármálastjórn liðinna ára. Ég vil draga fram að við erum hér að halda uppi áætluðum útgjaldaáformum inn á 2020.