149. löggjafarþing — 132. fundur,  2. sept. 2019.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur.

762. mál
[12:28]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við greiðum atkvæði um lækkun skatta á höfundaréttargreiðslum. Þannig munu síðari afnot af hugverkavörðu efni verða skattlögð eins og um fjármagnstekjur sé að ræða. Tilefni frumvarpsins má m.a. rekja til sáttmála stjórnarflokkanna þar sem fram kemur að hugað verði að breytingum á skattlagningu á tónlist, íslensku ritmáli og fjölmiðlum. Þessi hugmynd er þó alls ekki ný af nálinni heldur hefur hún verið til umræðu um alllangt skeið. Hagsmunasamtök höfundavarins efnis hafa margoft rætt þá ósanngirni sem felst í að meðhöndla ekki hugverk og tréverk með sama hætti þegar að skattlagningu kemur. Með þessari breytingu erum við að auka sanngirnina og viðurkenna að hugverkavarið efni sé eins og önnur peningaleg verðmæti, fasteignir, fjármunir og hlutabréf. Þannig er sanngjarnt að síðari afnot af slíku efni, hvort sem um er að ræða bækur, tónlist, myndlist eða annað hugverkavarið efni, sé skattlagt eins og um húsaleigu eða fjármagnstekjur sé að ræða.

Með þessari breytingu erum við að auka vægi skapandi greina og byggja undir þær mikilvægu atvinnugreinar sem skapandi greinar eru. Með þessari skattalækkun erum við að bæta samkeppnisstöðu Íslands þegar kemur að skapandi greinum (Forseti hringir.) því að þótt orkan sé okkar mikilvægasta auðlind er hugvitið án efa mikilvægt líka. Ég hvet hv. þingmenn til að styðja þetta góða mál.