149. löggjafarþing — 132. fundur, 2. sept. 2019.
tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur.
762. mál
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða sjálfsagt réttindamál fyrir listamenn og aðra höfundaréttarhafa. Í eðli sínu er um að ræða fjármagnstekjur og því eðlilegt að skattleggja þær sem slíkar. Við í Samfylkingunni styðjum þetta mál og munum greiða atkvæði með því.
Hitt er svo annað mál að fjármagnstekjuskattur hér á landi mætti alveg vera hærri. Hann er lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum.