149. löggjafarþing — 132. fundur,  2. sept. 2019.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur.

762. mál
[12:33]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Þrátt fyrir síðustu ummæli mín um frumvarpið í heild er rétt að geta þess að þessar breytingartillögur frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar eru til að bæta málið með því að fjarlægja rétthafasamtök út úr myndinni og því munum við greiða atkvæði með þeim breytingum. Ég gat þó ekki séð mér fært að styðja nefndarálitið hreinlega vegna þess að það var ýmislegt í texta nefndarálitsins sjálfs sem mér fannst benda til þess að þetta væri jákvæðara frumvarp en raun ber vitni.

Hins vegar eru breytingartillögurnar jákvæðar þannig að að sjálfsögðu styðjum við þær.