150. löggjafarþing — 13. fundur,  8. okt. 2019.

skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.

190. mál
[16:10]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Svo fyrst sé komið inn á félagafrelsið er auðvitað hreint og klárt félagafrelsi á Íslandi. Því fylgir auðvitað að þó að fólk hafi heimild til að stofna til ýmiss konar félaga hafa stjórnvöld heimild til að setja þeim ákveðnar skorður og skilyrði. Það er það sem verið er að gera hér.

Já, meðalhófs er gætt í málinu og það var litið sérstaklega til þess við vinnslu frumvarpsins. Ég nefni að það séu tæplega 300 félög sem falla undir þessa skilgreiningu. Ég get ekki nefnt einhver ákveðin dæmi um slík félög en málið fer fyrir efnahags- og viðskiptanefnd síðar í dag. Þar koma fyrir nefndina gestir sem geta svarað þeim spurningum. Ég geri ráð fyrir því að svör komi fram á þeim nefndarfundi.