150. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2019.

staða opinberra framkvæmda.

[15:33]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið og tek svo sannarlega undir með honum að hér er ekki um átaksverkefni að ræða, enda er það mjög skýrt tekið fram í greinargerðinni sem fylgdi með þessari þingsályktun á sínum tíma að svo sé alls ekki. Þótt ég geti að einhverju marki skilið að það kunni að þurfa að velta því fyrir sér hvernig eigi að koma nefnd af þessu tagi fyrir í stjórnkerfinu er líka rétt að hafa í huga að hún hefur í sjálfu sér ekki neitt stjórnsýslulegt hlutverk annað en að móta hugmyndir. Þetta var lagt fram á sínum tíma að norskri fyrirmynd. Þar er þetta fyrst og fremst vettvangur til að ræða um hvernig best megi gera hlutina og leggja fram hugmyndir og vangaveltur um það. Ég hefði því haldið að alveg óhætt væri að skipa þennan hóp til þess að takast á við það verkefni.