ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu.
Herra forseti. Ég gæti í meginatriðum tekið undir ágætisatkvæðaskýringu frá hv. þingkonu Álfheiði Eymarsdóttur. Samfylkingin er á þessu máli með fyrirvara. Við munum greiða því atkvæði en fyrirvarinn hefur með vinnubrögð að gera, hversu seint hlutir koma inn og jafnvel á síðustu stundu. Það er ömurlegt að við þurfum að standa í þessu en við þekkjum auðvitað forsögu þess að Bretar telja sig ekki eiga samleið með öðrum Evrópuþjóðum innan Evrópusambandsins. Það held ég að séu afskaplega slæm tíðindi. Ég held að mannkynið standi á þeim tímamótum að það séu engar aðrar leiðir færar til að ráðast gegn loftslagsógninni, ófriði, fátækt og takast á við önnur risaverkefni en sú að við stöndum saman. Við þurfum að bregðast við en þeir ráða hvað þeir gera. Við munum greiða málinu atkvæði en með fyrirvara.