150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[14:09]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Flokkur fólksins leggur fram nokkrar breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið. Hver einasta þeirra lýtur að því að koma til móts við fólkið í landinu því að Flokkur fólksins setur fólk í fyrsta sæti. Hér hef ég ítrekað bent á að forgangsröðun fjármuna hefur ekki verið í þágu fólksins í landinu eins og kostur er. Þegar hv. þingmenn segja að við séum að styðja við stöðugleikann er það á kostnað fátækasta fólksins í landinu. Hér eftir sem hingað til er alveg greinilegt að þjóðarskútunni virðist vera haldið á floti með því að beygja bognu bökin meira. Ég mun biðja um nafnakall á ýmsu af því sem ég er að leggja fram. Ég vil fá að sjá hvort við erum tilbúin að mismuna öryrkjum hvað varðar þjónustu við NPA og ýmislegt fleira. Það verður gaman að sjá hvernig þingheimur tekur utan um okkar minnstu bræður og systur hér á eftir.