150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[15:32]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Eins og kom fram hér í fyrri atkvæðaskýringu minni er í raun ekki verið að taka nýjar ákvarðanir varðandi framkvæmdina heldur er um það að ræða að tafir urðu á tilteknum stórum verkhlutum á milli ára. Ég vil hins vegar segja og vekja athygli þingheims á því að hér er verið að efla sjúkrahúsþjónustu til viðbótar milli umræðna frá því sem var í frumvarpinu sjálfu um 600 milljónir alls, bæði í sérhæfða og almenna sjúkrahúsþjónustu. Það kemur fram hér í tillögunum á eftir að um er að ræða bæði Landspítalann, Sjúkrahúsið á Akureyri og heilbrigðisstofnanir úti um land.