150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

umsóknir um starf útvarpsstjóra.

[15:09]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Í dag rennur út umsóknarfrestur um starf útvarpsstjóra hjá RÚV sem stundum er kallað RÚV okkar allra en í dag er RÚV ekki RÚV okkar allra vegna þess að við fáum ekki að vita hverjir það eru sem sækjast eftir þessu starfi. Spurningin er: Hvað veldur? Því hefur verið fleygt að með þessu sé RÚV að brjóta upplýsingalög en ég trúi því ekki að hæstv. ráðherra vilji sitja undir því að undirstofnun hennar brjóti lög. Það er ekki lengra síðan en í síðustu viku sem kom skýrsla frá Ríkisendurskoðun þar sem í ljós kom að Ríkisútvarpið hafði verið að brjóta lög með því að stofna ekki hlutdeildarfélög um samkeppnisrekstur. Spurningin er þá kannski: Á það að verða norm eða eðlilegur framgangsmáti að RÚV brjóti lög? Ætlar ráðherra sem sagt að láta það óátalið?

Spurningin snýst líka einfaldlega um þetta: Finnst ráðherra rétt að almenningur fái ekki að vita hverjir sækja um starf hjá fyrirtæki í almannaþágu sem er að auglýsa mjög mikilvægt starf í okkar þjóðfélagi og geti þá hugsanlega mótað sér skoðun á því? Þó að það sé í höndum annarra að ráða getur almenningur kannski mótað sér skoðun á því, ef hann vill, hverjir ættu að ráðast þangað til forystu. Mig fýsir mjög að heyra svör ráðherra við þessu.