150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.

3. mál
[16:53]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Því ber sannarlega að fagna þegar við lækkum skatta og hækkum barnabætur og allt það þannig að ég mun styðja þetta frumvarp. Það breytir ekki þeirri staðreynd að mér þykir forgangsröðun fjármuna sem lýtur að þriðja skattþrepinu ekki rétt. Mér finnst ekki eðlilegt að kostnaðurinn við það skuli verða 21 milljarður kr. á árinu 2022 og að á næsta ári skuli einungis 2.450 kr. fara í vasa þeirra tekjulægstu. Þetta eru smáskref en það er ekki hægt annað en að greiða atkvæði með þeim þótt ég hefði persónulega forgangsraðað þessu svolítið mikið öðruvísi.