150. löggjafarþing — 41. fundur, 9. des. 2019.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um ef þörf krefur. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Já.) Það er svo og þá tökum við þá atkvæðagreiðslu samhliða atkvæðagreiðslu um afbrigði lítillega síðar á fundinum, þ.e. að afloknum óundirbúnum fyrirspurnatíma.