150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

orkufrekur iðnaður og lagning sæstrengs.

[15:17]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Það eru sannarlega blikur á lofti víða í efnahagslífinu. Þannig er komið málum að mjög mikilvægt fyrirtæki suður í Hafnarfirði hefur talið nauðsynlegt að draga saman framleiðslu sína um 15%. Þetta er mjög mikilvægur vinnustaður og þýðingarmikið fyrirtæki.

Nú hafa spunnist umræður í tilefni af viðtölum við hæstv. iðnaðarráðherra sem gefa tilefni til að spyrja hæstv. forsætisráðherra um stefnu ríkisstjórnarinnar varðandi orkufrekan iðnað og lagningu sæstrengs. Við höfum farið þá leið, herra forseti, að raforkuframleiðsla hér hefur verið nýtt til framleiðslu og við erum með iðnað sem hefur lagt mikið af mörkum til íslensks þjóðarbús. Þetta eru mjög mikilvægir vinnustaðir fyrir vel menntað fólk þar sem greidd eru, eftir því sem næst verður komist, laun sem eru mjög frambærileg miðað við það sem gerist og gengur á íslenskum vinnumarkaði. En vegna umræðunnar, vegna orða hæstv. iðnaðarráðherra, hlýt ég að spyrja: Hefur orðið eða er í bígerð breyting á stefnu hæstv. ríkisstjórnar þegar kemur að orkufrekum iðnaði og lagningu sæstrengs? Ég minni á það að í orkupakkaumræðunni hér á liðnu ári var aftekið með öllu af talsmönnum hæstv. ríkisstjórnar og ríkisstjórnarmeirihluta að sæstrengur væri yfir höfuð á dagskrá og þyrfti ekki að ræða það.