orkufrekur iðnaður og lagning sæstrengs.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Fyrst vil ég segja: Það er ljóst að við stöndum frammi fyrir kólnun í hagkerfinu. Þetta er ekki eina fyrirtækið sem blikur eru á lofti með. Við getum rifjað það upp að hér fór stórt flugfélag á hausinn í apríl í fyrra. Hér verður væntanlega loðnubrestur annað árið í röð, þannig að ýmsar blikur eru á lofti og full ástæða til að við ræðum það á þingi hvernig við viljum mæta því. Ég hef talað fyrir því að við þurfum að huga sérstaklega að hlut hins opinbera í því, þ.e. að aukinni opinberri fjárfestingu sem er enn rétt að nálgast sögulegt meðaltal þó að þessi ríkisstjórn hafi gefið myndarlega í og aukið hana um 45%.
Við skulum líka rifja upp að það standa yfir viðræður milli þessa fyrirtækis og Landsvirkjunar sem selur þeim orku. Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um að loka þessu fyrirtæki og við skulum sjá hverju þær viðræður skila sem fara fram á eðlilegum forsendum.
Hv. þingmaður spyr sérstaklega um lagningu sæstrengs sem sett var á dagskrá í ríkisstjórninni sem sat 2013–2016, en þá var farið í könnun á því verkefni. Hæstv. iðnaðarráðherra, eftir því sem ég gat best numið, sagði ekki annað en að hún teldi eðlilegt eða að hún gerði enga athugasemd við að slíkt yrði kannað til framtíðar. Það er ekki til marks um neina stefnubreytingu enda lagði hæstv. ráðherra sjálf til að engin ákvörðun yrði tekin um lagningu sæstrengs nema með samþykki Alþingis. Það fannst mér mjög góð breyting sem hæstv. ráðherra lagði til. Hún sagði hins vegar í þessu viðtali að hún gerði enga athugasemd við að þetta væri kannað til framtíðar. Ég hef sjálf sagt að mér hugnast ekki sú hugmynd en ég er líka þeirrar gerðar að ég hef aldrei á móti því að skoða hlutina út í hörgul og það kann að vera gert í framtíðinni og ég skildi hæstv. ráðherra þannig. (Forseti hringir.) Það hefur engin ákvörðun verið tekin um neina nýja stefnu í þeim málum og allt það stendur sem hér var sagt í fyrra (Forseti hringir.) þegar við hertum í raun rammann um það hvernig ætti að taka slíka ákvörðun.