fangelsismál.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það er mjög mikilvægt að við ræðum fangelsismálin oftar. Það er hins vegar þannig að af fimm fangelsum víðs vegar um landið eru tvö opin. Sogn er einnig opið fangelsi ásamt Kvíabryggju. Hér kom í úttekt svokölluð CPT-nefnd, nefnd Evrópuráðsins um varnir gegn pyndingum og ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð, í maí á síðasta ári og tók út fangelsin okkar og benti á að aðbúnaður fyrir konur á Kvíabryggju væri ekki nægjanlega góður. Vegna þeirra ábendinga var strax tekin sú ákvörðun að færa og gera sérstakan kvennagang í opnu fangelsi að Sogni til að konur ættu þann möguleika að geta verið í opnum fangelsum. Þar er aðstaða fyrir konur með ágætum. Ég fór sjálf í heimsókn þangað á dögunum — ég hef reynt að heimsækja öll fangelsin, á reyndar eftir Kvíabryggju — og átti bæði spjall við Fangelsismálastofnun og við fanga sem þar eru, sem er einnig mikilvægt til að heyra frá þeim hvernig fangelsismálakerfið okkar er. Verkefni eru auðvitað fjölbreytt. Hluti af föngunum er í námi en svo eru ýmis önnur störf í boði.
Af því að hv. þingmaður spyr um endurbætur á Kvíabryggju þá hefur ekki verið tekin sérstök ákvörðun um þær þótt ég taki vissulega undir að aðstæður megi vera betri, m.a. starfsfólks. En það er aftur á móti verið að skoða margt í fangelsiskerfinu og við vinnum m.a. eftir aðgerðaáætlun þar sem mesta þörfin var greind á Litla-Hrauni, í húsnæðiskosti. Þar þarf að bregðast við en fangelsið var byggt í mörgum hlutum og kannski ekki með þá stefnu sem við viljum hafa í fangelsismálum í dag að leiðarljósi. Í aðgerðahópnum voru líka sett af stað mikilvæg geðteymi sem hafa nú þegar hafið störf í fangelsum landsins og reynst mjög vel og er mjög gaman að heyra bæði frá fangelsismálayfirvöldum og föngunum sjálfum hvernig það reynist.