150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

fangelsismál.

[15:44]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og tek undir það að við eigum að einbeita okkur að þessu bataferli. Það er til mikils að vinna í fangelsismálum. Fangelsin eiga ekki að vera geymslustaður fyrir fólk heldur eigum við að reyna að skapa þau skilyrði að fangar geti orðið virkir samfélagsþegnar að afplánun lokinni og við eigum að reyna að lækka endurkomutíðni fanga í fangelsin. Við höfum nú opnað þennan sérstaka gang fyrir konur í fangelsinu á Sogni sem er í opnu rými. Þar er einungis verið að nýta eitt rými en þar er tækifæri, eins og hv. þingmaður segir, fyrir fleiri konur að vera, það eru rými fyrir þær konur sem geta farið í opin fangelsi. En við erum að vinna eftir mjög fjölbreyttri stefnu, í heilbrigðisráðuneytinu, í félagsmálaráðuneytinu og í dómsmálaráðuneytinu, að betrun fanga. Ég tek undir með hv. þingmanni um mikilvægi þess og mun leggja mig alla fram við að setja það í forgang.