stuðningur við rannsóknir og nýsköpun utan höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur fyrir þessa umræðu sem er afar mikilvæg. Hér hefur margt gott komið fram þó að ekki komi allir með góðar hugmyndir um framþróun í þessu. Það er auðvitað mjög mikilvægt, eins og kom fram í ræðu ráðherrans, að landsbyggðin og auðvitað fyrst og fremst frumkvöðlar og hugmyndir þeirra sitji við sama borð. Ég held að það skipti mestu máli því að þessu er erfitt að deila niður eftir hausatölu úti um landið.
Það sem við þurfum líka að huga mjög mikið að í þessum sal er umhverfi nýsköpunarinnar, hvernig það er fyrir þá sem vinna á því sviði. Gæði umsókna eru nánast sérfræðiatriði, menn þurfa nánast að vera sérfræðingar í því að sækja um í þessa sjóði og óvissan og biðin er löng. Við þurfum að laga leyfisveitingar, skattkerfi og reglugerðarumhverfi svo að það taki mið af þeim löndum sem við berum okkur helst saman við þar sem slíkir hlutir gerast nánast á ljósahraða meðan við bjóðum upp á margra mánaða bið.
Ósigrar eru einn hluti af nýsköpun og þeir eru óhjákvæmilegir, eins og kom fram á fundi í atvinnuveganefnd í morgun. En uppgjöfin er óásættanleg og það er auðvitað það sem við skulum hafa að leiðarljósi. Það er líka þannig að frumkvöðlar og atvinnulífið búa að því er virðist oft við annað reglugerðarumhverfi en t.d. nágrannalönd okkar í Evrópusambandinu sem þó setur reglurnar sem við tökum upp. Við þurfum að skoða það.
Í lokin vil ég minnast á það að frumkvöðlafyrirtækin sem hafa vaxið í skjóli öflugs atvinnulífs og eru á markaði um allan heim byrjuðu líka á fyrsta skrefinu.