atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé ekkert óeðlilegt þegar verið er að smíða frumvarp á 30 klukkutímum að þá sé horft til fyrri lagasetningar og reynt að vinna út frá henni. Ég held að það væri mjög óeðlilegt að gera það ekki.
Varðandi 20–50%-hlutfallið sem þingmaðurinn nefndi í lokin hef ég skilið það þannig að þetta hafi upphaflega ekki verið inni en síðan hafi það komið inn við vinnslu málsins á sínum tíma þegar það var sett eftir efnahagshrunið. Varðandi ábendingar sem þingmaðurinn er með um að staðan sé önnur núna en hún var eftir efnahagshrunið er það á margan hátt rétt. Við erum á öðrum stað núna, við erum rúmum tíu árum seinna á ferðinni, og kannski er mesta breytingin — nú ætla ég að svara fyrri vangaveltum þingmannsins — núna versus það sem var hér eftir efnahagshrunið hinn mikli fjöldi erlendra ríkisborgara á vinnumarkaði, ekki hvað síst sem starfar í ferðaþjónustunni, og hátt hlutfall þeirra sem eru nú þegar á atvinnuleysisskrá. Áskorunin um að bjóða upp á fjölmörg úrræði til handa þessu fólki sem margt er flutt hingað og sest að með sínar fjölskyldur er talsverð. Þess vegna eru mjög góðar ábendingar sem þingmaðurinn er með um ensku og pólsku. Ég veit að Vinnumálastofnun hefur lagt mikla áherslu á þetta hjá sér undanfarna mánuði og m.a. gert skipulagsbreytingar til að ná betur utan um mikinn fjölda atvinnulausra erlendra ríkisborgara.
Alls voru 3.900 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok febrúar, fyrir bara hálfum mánuði. Sá fjöldi samsvarar um 11,1% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara. Það er mikil aukning frá því í febrúar 2019 (Forseti hringir.) þegar fjöldinn var einungis 2.100, þ.e. 6,3%. Ég þakka fyrir þessa ábendingu þingmannsins og við komum henni áfram við framkvæmd og eftirfylgd laganna.