aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Við í Viðreisn styðjum þennan aðgerðapakka og ég þakka fyrir það góða samstarf sem tókst í efnahags- og viðskiptanefnd hvað þessar tilteknu aðgerðir varðar. Hins vegar er ekkert launungarmál að við hefðum viljað ganga lengra. Við hefðum viljað ganga lengra í greiðslufrestum fyrir atvinnulífið og við hefðum sérstaklega viljað ganga lengra hvað varðar lítil og meðalstór fyrirtæki, einkum örfyrirtækin sem eru að glíma við alveg gríðarlega erfitt rekstrarumhverfi. Núna er nær fullkominn tekjumissir og fjöldi þeirra er algjörlega lokaður. Það er alveg ljóst að þar þarf mun meira að koma til. Það er afar brýnt að strax sé gripið til þessara aðgerða og að ríkisstjórnin fylgi þessum tillögum strax eftir með öðrum aðgerðapakka af því að þessi gengur ekki nægjanlega langt. Það vantar meiri metnað.