fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Ég tel það fyrirsjáanlegt að kostnaður heilbrigðiskerfisins verði mun meiri en það sem lagt er til að bæta við í þessari breytingartillögu. Tillaga meiri hlutans er sú að halda utan um kostnaðinn og bæta hann þegar hann liggur fyrir. Líkt og þríeykið minnir okkur á á hverjum degi erum við enn varla hálfnuð.
Engin vissa er um að þeir 30 milljarðar sem stjórnarandstaðan leggur til komist til vinnu á þessu ári líkt og lagt var upp með. Það eru nokkrar breytingartillögur sem ég tel að séu beinlínis vanhugsaðar eins og hækkun barnabóta sem kemur þeim tekjuhærri best og beinlínis dregur úr notagildi kerfisins til jöfnunar eins og kom fram í skýrslu ríkisendurskoðanda. Á ýmislegt virðist slumpað án þess að nokkuð sé vitað um hvernig það kemur út fyrir einstaka hópa. Það er mikilvægt að vera á tánum í þeirri stöðu sem við erum í og taka ákvarðanir í skrefum til að vera viss um að við séum að beina fjármunum þangað sem þeir nýtast best. Það munum við gera.