150. löggjafarþing — 84. fundur,  30. mars 2020.

fjáraukalög 2020.

695. mál
[19:26]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Hér er um að ræða mjög metnaðarfullar tillögur um aukin framlög til nýsköpunar og tæknisjóða. Hér er um að ræða vel raunhæfar og framkvæmanlegar tillögur sem hægt væri að ráðast í nú þegar. Í krísu eins og við erum í í dag eru einmitt tækifæri til að huga að því sem getur rifið okkur upp úr þessari kreppu þegar við ætlum að sækja fram á við á ný eftir að tekist hefur að bæla niður kórónufaraldurinn.

Þetta eru öflugar tillögur. Ég styð þær heils hugar og það veldur vissulega vonbrigðum að horfa á töfluna og sjá að meiri hlutinn hefur engan áhuga á að styðja við nýsköpun og tækni á þessum viðsjárverðu tímum.