150. löggjafarþing — 84. fundur,  30. mars 2020.

fjáraukalög 2020.

695. mál
[19:27]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég hvet þingheim til að styðja þessa góðu tillögu sem minni hlutinn hefur sameinast um. Stjórnarandstaðan hefur sameinast um hana. Það er aldrei mikilvægara en nú, þegar við horfum fram á gríðarlegan samdrátt í efnahagskerfinu, fólk að missa störf og annað slíkt, að styðja vel við nýsköpun. Nýsköpun er lykillinn að því að við náum að endurreisa hér atvinnuvegina á skjótan hátt. Þetta er afar mikilvæg tillaga og ég fagna því sérstaklega að við í stjórnarandstöðunni höfum náð saman um þetta. Eins og ég segi hvet ég stjórnarliða til að ganga til liðs við okkur í þessu máli.

Á vegum stjórnarliða hefur verið talað um mikilvægi þess að við stöndum saman. Við höfum sýnt það í stjórnarandstöðunni að við höfum staðið saman og við komum til með að styðja tillögur stjórnarinnar þannig að við hefðum kosið að stjórnarliðar myndu nú styðja okkur í þessu mikilvæga máli.

Ég segi að sjálfsögðu já.