fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Verkefni stjórnvalda núna er að styrkja félagslegar stoðir og huga að því fólki sem verst fer út úr þessum hremmingum. Því leggur stjórnarandstaðan til aukið fjármagn í velferð, endurgreiðslur til starfsfólks í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem eru í framlínu í baráttu gegn þessum skæða vírus og að framlög til heilbrigðisþjónustu verði aukin um 1 milljarð til viðbótar og aukin framlög til vaxta- og húsnæðisbóta til að auka húsnæðisöryggi tekjulágra. Eldri borgarar fái sambærilegar eingreiðslur og öryrkjar, fjármagn verði sett til að fjölga NPA-samningum og stuðningur aukinn til fjölskyldna langveikra barna.
Þá er hvatt til þess að samningar við heilbrigðisstéttir verði kláraðir sem fyrst. Samkennd og samhjálp verður að vera helsta leiðarstefið í öllum efnahagsaðgerðum stjórnvalda eins og ástatt er og enginn hópur samfélagsins má þurfa að bera of þungar byrðar á þessum tímum.