fjáraukalög 2020.
Virðulegur forseti. Í þeim aðgerðum sem hér er verið að grípa til á fordæmalausum tímum er m.a. lagt í allnokkrar framkvæmdir á sviði heilbrigðismála. Er því fagnað sérstaklega að til viðbótar við það sem ríkisstjórnin hefur þegar lagt til hefur fjárlaganefnd bætt við 380 milljónum í einstaka framkvæmdaliði. Ég vil sérstaklega nefna viðbyggingu Grensásdeildar sem beðið hefur verið eftir um langt árabil og er löngu tímabær. Hún hefst í sumar og er til þess fallin að gleðjast yfir vegna þess hversu mikilvæg starfsemi fer þar fram.
Ég þakka líka hv. fjárlaganefnd fyrir að bæta við fjármagni í rekstur og framkvæmdir vegna yfirstandandi faraldurs. Fram kemur í nefndaráliti að full þörf verði á að bæta þar töluvert í þegar við sjáum hversu mikil útgjöld þessi faraldur útheimtir þegar hann verður að baki.