fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Í ljósi þeirrar umræðu sem hér hefur verið um þennan fjárauka sem væntanlega er fyrsti fjárauki þessa árs, ársins 2020, held ég að full ástæða sé til að minna á að sú ríkisstjórn sem nú situr hefur aukið opinbera fjárfestingu um ríflega 70% frá því að hún tók við. Hér var ákveðið að taka markvissa ákvörðun um að efla þennan þátt og það gerum við enn með því að fallast á þennan fjárauka.
Ég minni líka á að árlegt framlag ársins 2020 til reksturs heilbrigðiskerfisins er u.þ.b. 28% hærra að nafnvirði en það var árið 2017 sem ég held að flestir þakki fyrir. Eftir að hér var mikið talað um bólgu í ríkisrekstrinum held ég að flestir þakki fyrir þessa áherslu núverandi ríkisstjórnar sem og þá áherslu að auka opinbera fjárfestingu með markvissum hætti. Vegna þess að vel hefur verið haldið á spilum er enn svigrúm til að ráðast í frekari framkvæmdir sem dreifast með þeim hætti sem hér hefur verið farið yfir.
Ég held að það sé mikilvægt að viðurkenna þessar staðreyndir áður en menn halda áfram í umræðu um fjárfestingarstefnu ríkisins.