sérstakt tímabundið fjárfestingarátak.
Virðulegi forseti. Það fer ekki fram hjá nokkrum manni að áhrif vegna kórónuveirufaraldursins eru gríðarleg á samfélagið allt. Fjölskyldur um land allt hafa fundið fyrir áhrifum með einum eða öðrum hætti. Fyrirtæki, sérstaklega í ferðaþjónustu, hafa beinlínis lagst á hliðina og ljóst er að tekjustreymi þeirra er lítið eða jafnvel ekkert næstu vikur og/eða mánuði.
Þessi aðgerðapakki nr. 2 frá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur skiptir gríðarlega miklu máli til að halda uppi atvinnu í landinu. Fjölmörg og margvísleg verkefni eru hér undir. Nýsköpunarsjóður námsmanna skiptir miklu máli þegar kemur að sumarvinnu þessa hóps sem og framlag í Tækniþróunar-, Rannsókna- og Innviðasjóð sem skapar fullt af störfum.
2 milljarðar til umhverfismála um land allt skapa líka fjölmörgum atvinnu, framlög til garðyrkjunnar til að auka innlenda framleiðslu, að ég tali ekki um framlög í heilbrigðismálin sem eru margvísleg.
Samgöngumálin fá stóran hlut hér enda um að ræða verkefni sem eru tilbúin og eru um land allt. Þetta er gríðarleg innspýting í hagkerfið sem er nauðsynleg en um leið er mikilvægt að taka þetta í skrefum og vera viss um að við séum að setja fjármuni þar sem þeir komast fljótt og örugglega í vinnu. Ég segi enn og aftur að við erum ekki að ljúka neinu heldur komum við til með að fylgjast með hvernig staðan þróast á næstu vikum og grípum inn í ef þurfa þykir.