fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Það er ljóst að íslenskt atvinnulíf er að ganga í gegnum fordæmalausa tíma og mun reyna mikið á efnahagslega og félagslega innviði landsins. Samfylkingin hefur stutt allar góðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar þar sem þær er að finna. Við höfum stutt allar tillögur stjórnarflokkanna en hér kemur í ljós að stjórnarflokkarnir treysta sér ekki til að styðja eina einustu tillögu sem kemur frá stjórnarandstöðuflokkunum. Mér finnst sorgleg niðurstaða, herra forseti, að meira að segja á tíma heimsfaraldurs geti stjórnarflokkarnir ekki risið upp úr pólitískum skotgröfum. Þetta er sérkennileg pólitík og ég fordæmi það vinnulag sem við enn og aftur sjáum í þessum sal og er fullkominn óþarfi, hvað þá á tímum sem þessum.