frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að fyrirtæki í fjölmiðlun gæti stuðst við þessi stuðningslán, enda séu önnur viðmið uppfyllt og tilgangurinn með lánunum að standa undir rekstrarkostnaði. Það er engin spurning að áhrifa þessa heimsfaraldurs gætir víða. Hérna eru fjölmiðlarnir nefndir til sögunnar um fyrirtæki sem augljóslega eru ekki í ferðaþjónustu eða í einhverju sem er nátengt ferðaþjónustu en verða fyrir tapi í tekjum vegna þess að umsvif í hagkerfinu dragast saman. Þau geta af þeim ástæðum hæglega fallið undir úrræðið. Ég tek undir það. Ég lét þess getið í framsögu minni að hérna erum við með mjög opið úrræði, opna lagagrein, hvað varðar útfærslu í reglugerð fyrir menntamálaráðherra. Mér finnst augljóst að það leiði í raun og veru af sjálfu sér að ef þingið eigi að fallast á að afgreiða tillöguna eins og hún er þá liggi áform ráðherrans nokkuð skýrt fyrir, væntanlega í formi reglugerðardraga, svo dæmi sé tekið. En auðvitað má líka velta fyrir sér hvort slíkt samtal gæti leitt til þess að greinin yrði útfærð eitthvað nánar, ef fyrir liggur sameiginlegur skilningur á því hvernig eigi að gera þetta með samspili laga og reglugerða þá getur eitthvað af því ratað beint í lagatexta. En menn mega ekki taka of langan tíma að láta þetta þvælast fyrir sér. Við erum hérna með fjárhæð, það er leiðbeining í textanum um að horfa til launakostnaðar fyrirtækjanna. Ég segi þetta, að við þurfum að klára þetta hratt og örugglega, vegna þess að þetta er aðgerð sem er ætlað að mæta vanda (Forseti hringir.) sem er uppi í dag og þetta er einskiptisaðgerð fyrir árið 2020.