pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
Herra forseti. Það er ekki annað hægt en að koma aðeins upp og tjá sig um þetta undarlega mál því að þetta er undarlegt, eins og kom ágætlega fram í ræðu hv. þm. Jóns Steindórs Valdimarssonar á undan mér, og það eru margar hliðar á því. Þetta er vitanlega alger frestun á vanda ferðaskrifstofanna sem þarna eiga í hlut. Maður velti því fyrir sér hvort sú leið sem hv. þingmaður nefndi hér um að kaupa kröfurnar sé ekki einfaldlega betri leið. Ég vil líka velta upp hér af hverju í ósköpunum ríkið ætlar neytendum, íbúum landsins, að lána ferðaskrifstofunum. Af hverju lánar ríkið ekki frekar þessum ferðaskrifstofum peninga í staðinn fyrir að neytendur séu orðnir einhvers konar lánastofnun fyrir þær? Það er verið að setja 350 milljónir í fjölmiðla og peninga í hinar og þessar áttir í þeim málum sem við höfum séð hér. Af hverju eru ekki búnir til einhverjir sjóðir sem ferðaskrifstofurnar geta sótt í eða að þeim sé í það minnsta tryggðir þeir fjármunir, þ.e. að þær þurfi ekki að láta þá af hendi en neytendur fái sitt.
Þá má líka velta því fyrir sér, ef ráðherra er svona örugg með að þetta glatist ekki, að ríkið ábyrgist hreinlega að þeir neytendur sem vilja taka við þessum inneignarnótum fái þær bættar frá ríkinu. Best væri að sjálfsögðu að þeir sem það vildu fengju bara sína aura, aðrir sem vilja fá inneignarnótur fái þær, en ríkið ábyrgist það sem skiptir máli í þessu öllu saman.
Við höfum öll skilning á því að ferðaskrifstofurnar eru í vanda, herra forseti, en við höfum lítinn skilning á því að það skuli vera viðskiptavinirnir, neytendurnir, sem eigi að bera áhættuna og borga brúsann. Réttast væri að ríkið stigi þarna inn í eins og það er að gera úti um allt samfélag í dag. Af hverju ekki þarna? Af hverju að láta fólkið, sem búið er að eyða sparifé sínu eða sjóðum sínum og eignum, lána þessum aðilum eins mikið og það mun klárlega lána þeim? Mér finnst þetta lélegt mál, mér finnst þetta vont þingmál og það þarf a.m.k. að breyta því töluvert mikið í þinginu ef það á að vera eitthvert réttlæti í þessu. Það er í raun svolítil forsjárhyggja í málinu, að ákveða það að ef einhver hafi keypt sér ferð þá skuli ferðaskrifstofa geta bara ákveðið að láta hann hafa inneignarnótu í staðinn fyrir peningana sem hann á rétt á í dag. Ég tek undir með þeim sem hér hafa talað að það hlýtur að vera a.m.k. vafamál hvort það standist að breyta lögunum afturvirkt.
Virðulegur forseti. Ég ítreka það aftur sem ég sagði upphafi: Þessu máli þarf að breyta, það þarf að koma einhverju viti í það því að þetta er galið eins og það er.