kjaramál hjúkrunarfræðinga.
Forseti. Okkur Pírötum hefur verið tíðrætt um kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga undir þessum lið og sérstaklega við hæstv. fjármálaráðherra. Hv. þm. Jón Þór Ólafsson spurði hæstv. ráðherra hvað það kostaði ríkissjóð að ganga að kröfum hjúkrunarfræðinga þann 20. mars sl., þegar hjúkrunarfræðingar höfðu verið samningslausir í heilt ár. Þá sagðist ráðherrann, umboðshafi ríkisstjórnarinnar í kjarasamningum, ekki vita það. Aftur spurði hv. þm. Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þann 2. apríl sl., hvað það myndi kosta að semja við hjúkrunarfræðinga sem þá voru enn samningslausir í miðjum heimsfaraldri en aftur neitaði hæstv. fjármálaráðherra að svara þessari einföldu spurningu. Þó er þetta mjög mikilvæg spurning, forseti. Við hljótum að eiga heimtingu á að vita hvað það kostar að ganga til samninga við þessa lykilstarfsmenn, við þessa stærstu kvennastétt landsins, í miðjum heimsfaraldri, sér í lagi þegar ekkert gengur að semja.
Forseti. Nú hafa hjúkrunarfræðingar hafnað undirrituðum kjarasamningi og má því segja að staðan í heilbrigðiskerfinu sé alvarleg. Forstjóri Landspítalans óttast uppsagnir, greindi frá því í kvöldfréttum í gær, og ekkert er vitað um samningsgrundvöll í framhaldinu. Mögulega gat hæstv. fjármálaráðherra réttlætt það einhvern veginn að vita ekki svörin við spurningum hv. þingmanna Jóns Þórs Ólafssonar og Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, ef honum fannst nógu góð ástæða til að forðast að svara áður en samningum hafði verið náð. En nú spyr ég hæstv. fjármálaráðherra ekki um hvað kosti að ganga að kröfum hjúkrunarfræðinga heldur hitt, hvað nýfelldur samningur hefði kostað ríkissjóð. Þetta hlýtur hæstv. ráðherra að vita, hann hlýtur að vera með það á hreinu, ég bara trúi ekki öðru. Mér þætti vænt um að fá svar við þessu.