150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

framkvæmd aðgerða ríkisstjórnarinnar.

[15:31]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Rætt er um breiðu línurnar. Þingheimur og þjóðin verða lítið vör við sýn ríkisstjórnarinnar á þessum tímum. Óhætt er að segja að allt sé frekar óskýrt varðandi fjölda og umfang aðgerða, heildarsýn ríkisstjórnarinnar, áætluð lok sérstakra ráðstafana. Hvaða fyrirætlanir eru uppi ef önnur bylgja ríður yfir? Verður þá landinu skellt í lás enn fastar en nú er?

Illa gengur að koma aðgerðum stjórnvalda í framkvæmd. Má þar nefna brúarlánin sem ekkert fyrirtæki hefur enn fengið hvað best ég veit og eru þó margar vikur síðan ákveðið var að ráðast í það úrræði. Aðrar aðgerðir hafa verið boðaðar en eru ekki orðnar að lögum og frumvörp hafa ekki enn séð dagsins ljós, svo sem um uppsagnarleiðina, en fyrirtæki eru þegar farin að haga sér í samræmi við hana. Stuðningslán og lokunarstyrkir eru enn í þinginu og hlutabótaleiðin er sögð meingölluð.

Þá kemur fram í fjölmiðlum að ráðherrarnir eru missaga um mjög mörg mikilvæg málefni. Einn á í ritdeilum við þingmann stjórnarandstöðunnar um það hvort fjölga eigi opinberum störfum á sama tíma og allir hæstv. ráðherrar sem í þingsal voru greiddu atkvæði gegn tillögu Viðreisnar um að útvíkka sumarstarfaúrræði námsmanna svo það næði til almenna vinnumarkaðarins líka. Hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra talar um framlengdar lokanir landamæra á skjön við aðra ráðherra sem sjá mikilvægi í því að opna aftur fyrir lífæð ferðaþjónustunnar á sem öruggastan máta. Hver er stefnan, hæstv. forsætisráðherra?

Það er talað um að skapa störf. Samt fella ríkisstjórnarflokkarnir allir sem einn tillögur á borð við þær að láta úrræði fyrir námsmenn ná til einkamarkaðarins. (Forseti hringir.) Þeir fella líka tillögur um að lækka verulega tryggingagjald fyrir þá sem koma af atvinnuleysisskrá. Hver er stefnan? Vill hæstv. ríkisstjórn skapa atvinnu eða ekki?